Skilti og umferðarspeglar

GSG býður fjölbreytt úrval af skiltum og umferðarspeglum, bæði framleiðslu og uppsetningu.


Uppsetning skilta og umferðarspegla getur verið mismunandi eftir aðstæðum. Við metum hverju sinni hvernig er best að koma skiltum og speglum fyrir á hverjum stað.

Við höfum tök á að bjóða upp á allar gerðir skilta en algengustu gerðir eru eftirfarandi:

  • Bannskilti
  • Upplýsingaskilti
  • Umferðarskilti
  • Skilti með logo eða nafni fyrirtækja
  • Skilti með bílnúmeri eða húsnúmeri
  • Skilti merkt einstaklingi eða starfsheiti
  • Umferðarspegill stainless steel anti fog / anti freeze 600x800mm
  • Umferðarspegill acrylic glass anti fog / anti freeze 600x800mm
  • Umferðarspegill acrylic glass anti fog / anti freeze kringlóttur 600mm í þvermál


Algengt er að reka niður staur og hengja skilti eða umferðarspegil á staurinn eða á staura sem fyrir eru. Einnig að skilti séu boruð í vegg eða á kant eftir því sem við á. Umferðarspeglar eru einnig mikið settir á veggi þar sem útsýni er ekki gott í bílakjöllurum og öðrum sambærilegum stöðum.


Upp hafa komið skemmtilegar aðstæður í þessum efnum og þá er krefjandi fyrir okkur að finna bestu lausnina í samráði við viðskiptavininn hverju sinni. Vertu í sambandi og við finnum réttu lausnina fyrir þig!