Malbiksviðgerðir
Samskeytalausar viðgerðir á öllum holum og sprungum sem myndast í malbiki
GSG býður upp á allar gerðir af malbiksviðgerðum og malbikun. Allt frá einni holu í stærðarinnar bílaplön!
Við viðgerð á brotholum og sprungum notum við svokallaðan gashlemm, sem gerir okkur kleift að hita upp malbik í kringum skemmdir.
Með þessu móti mætir heitt malbik heitu malbiki og náum við þannig að koma í veg fyrir að samskeyti verði sjáanleg.
Samskeyti eiga það til að brotna upp mjög fljótt eftir viðgerð ef þessi aðferð er ekki notuð.
Á stærri svæðum getur þurft að saga og endurnýja malbikið með öllu.
Vertu í sambandi og við finnum bestu lausnina fyrir þig!








